Fréttir Grunnskóli
Skolasetning_001_a_vef
Skolasetning_001_a_vef
5. bekkur
Mynd 1 af 2
1 2

Skólasetning í Grunnskólanum

25.08.2008

Skólasetning í Grunnskólanum fór fram s.l. fimmtudag. Nemendum og foreldrar mættu með börnum sínum og áttu stund með umsjónarkennurum og farið var í gegn um þau hlutverk sem við eigum í kennslustofunni og í skólanum. Mjög góð mæting var og sköpuðust skemmtilegar umræður um hlutverkin og tilgang þeirra. Á föstudeginum var svo sú nýbreytni að foreldrar gátu komið í skólann og spjallað við umsjónarkennara.
Með þeim gögnum sem bárust með nemendum í skólasetningunni var námsáætlun, en í henni er að finna yfirlit yfir það sem farið verður í í vetur. Einnig er getið um það námsmat sem gengið er út frá fyrir önnina. Það er gott fyrir nemendur að gera sér grein fyrir því hvað það er sem verið er að meta í verkum þeirra yfir veturinn og einnig á hvað er verið að leggja áherslu.
Grunnskólinn lagði einnig fyrir nýjar skólareglur sem unnar eru í takt við uppbyggingarstefnuna. Einhverjar athugasemdir bárust við þær sem er gott því að reglurnar þurfa samþykki alls skólasamfélagsins.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica