Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar
Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar fimmtudaginn 21. ágúst kl. 17:00 - 19:00. Nemendur mæta með foreldrum sínum hver í sinn skóla.
Á skólasetningu verður farið yfir helstu atriði í skólastarfinu, nýjar skólareglur, námstilhögun í hverjum árgangi fyrir sig ásamt fleiri mikilvægum atriðum.
Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að mæta með börnum sínum og láta yngri börnin þá ganga fyrir.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 25. ágúst.
Í byrjun næstu viku fá foreldrar drög að nýjum skólareglum send í tölvupósti. Við biðjum foreldra og nemendur um að kynna sér vel þessi drög svo þeir geti rætt um þau á skólasetningu og komið með breytingartillögur ef þeir vilja.
Innkaupalistar eru komnir í Nettó og á heimasíðu skólans. (hér)
Opið hús í Grunnskólanum
föstudaginn 22. ágúst kl. 9:00 ? 14:00
Föstudaginn 22. ágúst milli kl. 9:00 til 14:00 er opið hús í Grunnskólanum. Þá gefst foreldrum og nemendum tækifæri til að hitta kennara hafi þeir t.d. ekki komist saman á skólasetningu eða ef þeir vilja ræða við þá um einstaklingsmál eða önnur mál er varða skólastarfið.
Enginn skólaakstur er í tengslum við skólasetningu.



