Fréttir Grunnskóli
Nes_mai_unicef_064
Nes_mai_unicef_064
Allir hrópuðu U.N.I.C.E.F í lokin
Mynd 1 af 2
1 2

Unicef hreyfingin

10.06.2008

Í lok maí tóku nemendur í 2. - 6. bekk grunnskólans þátt í Unicef-hreyfingunni svokallaðri. Þessir nemendur hlupu og gengu samtals 619,6 km og söfnuðu um leið áheitum. Áheitin skiluðu sér vel og samtals söfnuðu nemendurnir 294.642 krónum. Söfnunarféð úr UNICEF-hreyfingunni fer í alþjóðlegan sjóð UNICEF og er nýtt þar sem þörfin er mest hverju sinni. Við megum koma með tillögu um það í hvað okkar söfnunarfé rennur en hér fyrir neðan er langur listi af mögulegum verkefnum. Ef þið viljið hafa áhrif á valið þá endilega látið Sævar Þór Gylfason vita með því að senda honum tölvupóst á nefangið saevar@hornafjordur.is.

Ef framlag Grunnskóla Hornafjarðar verður notað í menntaverkefni:
Getið þið útvegað 11.785 nemendum blýanta og stílabækur
-Eða
Útvegað 5892 nemendum töfluspjöld og litakrítar.
-Eða
keypt krítartöflu, 2 töflupúða, 100 krítar og 100 litakrítar fyrir 196 skóla.
-Eða
Keypt tvo blakbolta og tvö blaknet fyrir 65 skóla.

Ef framlag Grunnskóla Hornafjarðar verður notað við Bólusetningar:
Dugar framlag ykkar til að útvega 26.785 skammta af bóluefni gegn lömunarveiki.
-Eða
23.571 skammta af bóluefni gegn mislingum.
-Eða
65.476 einnota sprautur sem nota má til að bólusetja jafn mörg börn.

Ef framlag Grunnskóla Hornafjarðar verður notað í heilsuverkefni:
Dugar framlag ykkar til að útvega 294.642 skammta af A-vítamíni, sem er notað bæði við A-vítamín skorti og gegn aukaverkunum af völdum mislinga.
-Eða
73.660 poka af saltlausn sem kemur í veg fyrir niðurgang og ofþornun hjá börnum.
-Eða
655 moskítónet, húðuðum með flugnaeitri, sem verja fjölskyldur fyrir malaríu. Í Afríku deyr barn á 30 sekúndna fresti af völdum malaríu.
-Eða
196 fyrstu-hjálpar sett, sem innihalda sárabindi, heftiplástra, sótthreinsaða hanska, skæri, teppi, augndropa og sótthreinsivökva.

Ef framlag Grunnskóla Hornafjarðar verður notað fyrir börn á hamfarasvæðum:
Dugar framlag ykkar til að útvega 1178 stór ullarteppi.
-Eða
2209 10 lítra vatnsbrúsa til að geyma og flytja vatn.
-Eða
491 20 fermetra búta af segldúki, sem nota má sem einfalt skýli eða nota sem undirlag fyrir nokkrar fjölskyldur.
-Eða
4910 pakka af orkuríku kexi sem er sértaklega framleitt fyrir vannærð börn.
-Eða
32 fjölskyldusett af drykkjar- og hreinlætisbúnaði, sem inniheldur vatnsbrúsa, fötur, sápu og vatnshreinsitöflur. 10 fjölskyldur geta notið góðs af hverju setti - alls 320 fjölskyldur.

Nú er um að gera að nýta sér lýðræðið og láta Sævar vita í hvað þið vilduð sjá fjármunina fara.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica