Fyrstu skólaslit í Grunnskóla Hornafjarðar
Skólaslit Grunnskóla Hornafjarðar fóru fram við hátíðlega athöfn í Íþróttahúsinu á Höfn 3. júní. Mikið fjölmenni var í Íþróttahúsinu enda nemendur um 330 og starfsmenn ríflega 60. Auk hefðbundinna dagskráratriða á skólaslitum voru ýmis tónlistaratriði allt frá einsöng upp í Lúðrasveit. Hápunktur skólaslitanna var þó útskrift 10. bekkinga en í ár luku 35 nemendur grunnskólaprófi. Þess má geta að af þeim luku 33 einum eða fleiri áföngum úr FAS meðfram grunnskólanáminu. Þetta voru áfangar í t.d. þýsku, dönsku, spænsku, grunnteikningu, bókfærslu og ferðamálafræði. Námið í FAS byggir á samstarfsamningi sem gerður var milli Grunnskólans og FAS og skilar þessi samningur sér betur og betur með hverju árinu.
Að útskrift lokinni fóru nemendur í 10. bekk út að borða með foreldrum sínum og kennurum. Þetta voru fyrstu skólaslit í Grunnskóla Hornafjarðar sem var stofnaður við sameiningu Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla. Samhugur og eining ríkti á skólaslitunum og er það almenn tilfinning starfsfólks eftir þetta fyrsta skólaár að þannig hafi starfsandinn verið í vetur.



