43 á Ketillaugarfjall- skólaslit á morgun
Þau enduðu þetta skólaár svo sannarlega með stæl nemendurnir sem fóru á Ketillaugarfjall í dag. 4- 8. bekkur gekk Krossbæjarskarð en 39 nemendur og 4 starfsmenn tóku smá lykkju á leiðina og skelltu sér upp á Ketillaugarfjall. Lagt var af stað í blíðskaparveðri í morgun og þrátt fyrir að sólin hyrfi fljótt bak við ský var blíðskaparveður og gott útsýni allan tímann. Á morgun verða svo fyrstu skólaslit Grunnskólans við hátíðlega athöfn í Íþróttahúsinu á Höfn og hefjast þau kl. 17:00.



