Unicef hreyfing í 2. - 6. bekk
Í dag tóku nemendur í 2. - 6. bekk þátt í svokallaðri Unicef hreyfingu. Hún felst í því að nemendur hreyfa sig í ákveðinn tíma og safna með því pening sem rennur til Unicef til hjálpar börnum í neyð. Fyrir nokkrum dögum fóru þessir nemendur heim með umslög þar sem þeir söfnuðu velunnurum sem hétu á þá að fyrir hvern hring sem viðkomandi gengi eða hlypi á íþróttavellinum fengi hann ákveðna upphæð.
Unicef hreyfingin tókst með afburðum vel og samtals fóru þessir nemendur 1549 hringi á íþróttavöllunum á Höfn eða nesjum sem gera 619.6 km. Það er hvorki meira né minn en leiðin frá Höfn og til Stykkishólms og aðeins rúmlega það. Samtals voru það um 145 nemendur sem hreyfðu sig en í Nesjaskóla fóru þeir 63 nemendur sem eru í öðru og þriðja bekk 764 hringi. Þeir stóðu sig því með afburðum vel og hljóp sá sem lengst fór 25 hringi en það var Ólafur Björn Karlsson í 2. HL. Hann fór þar með lengst allra nemenda í skólanum þrátt fyrir að vera í yngsta bekknum.
Í dag koma nemendur heim með bækurnar sínar sem þau söfnuðu límmiðum í en fyrir hvern hringsem þau fóru fengu þau einn límmiðia. Þau fá áheitin greidd um helgina og á mánudag eiga þau að koma með umslögin með áheitunum í skólann og skila þeim til umsjónarkennar sem sér um að senda þau til Unicef.



