Fréttir Grunnskóli

Hopurinn_i_eyjum_a_vef

Vestmannaeyjafarar - 30.05.2008 Fréttir Grunnskóli

7. bekkur kemur heim milli sjö og hálf átta í kvöld. Úbbs, nei, þau ákváðu að skella sér í sund á Klaustri og koma ekki fyrr en um 20:30. Ef fólk vill fá nánari upplýsingar þá er hægt að hringja í Eygló í síma 8462227.
 
Hjoladagur_i_5._bekk_017_a_vef

Það er leikur að læra - 30.05.2008 Fréttir Grunnskóli

Síðust daga skólans er oftar brugðið út af hefðbundnu skólastarfi en gengur og gerist yfir veturinn. Sérstaklega á það við um yngri bekkina. Þá er farið að hlýna úti og þolinmælin oft orðin lítil við bóknámið. Þrátt fyrir að bókinni sé sleppt hætta nemendur ekki að læra heldur verður námið meira verklegt og félagslegt. Það er aldrei of mikil áhersla lögð á að þetta nám er jafn mikilvægt og allt annað nám og á þessum dögum eru margir nemendur að vinna sína stærstu sigra. Lesa meira
 
Unicef_hlaup_002_a_vef

Unicef hreyfing í 2. - 6. bekk - 30.05.2008 Fréttir Grunnskóli

Í dag tóku nemendur í 2. - 6. bekk þátt í svokallaðri Unicef hreyfingu. Hún felst í því að nemendur hreyfa sig í ákveðinn tíma og safna með því pening sem rennur til Unicef til hjálpar börnum í neyð. Fyrir nokkrum dögum fóru þessir nemendur heim með umslög þar sem þeir söfnuðu velunnurum sem hétu á þá að fyrir hvern hring sem viðkomandi gengi eða hlypi á íþróttavellinum fengi hann ákveðna upphæð. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica