Vestmannaeyjar ,,here we come”
Veðurguðirnir eru að taka vel á móti okkur í Vestmannaeyjum, hér höfum við átt góðan dag og skoðað það sem dregur ferðamanninn að. Í Herjólfi var svaka gaman, veltingur og fjör. Einhverjir urðu órólegir í maganum en aðrir sváfu og enn aðrir spiluðu. Ferðalagið hófst klukkan 05:15 við íþróttahúsið. Frekar syfjuð og lúin. Kennarar náðu þó að mæta á réttum tíma, og nemendur. Þó svo að allir hafi verið syfjaðir sofnaði enginn, fyrr en í Herjólfi. Við borðuðum nesti á Núpstað, teygðum úr okkur á Hvolsvelli og náðum ferjunni á tilsettum tíma.
Á morgun förum við í siglingu og skoðum Skansinn, spröngum, skoðum Náttúrugripasafnið og förum í sund..... ;) ;)


