Málningarvinna
Nemendur á miðstigi grunnskólans urðu þess heiðurs aðnjótandi í vor að fá að mála rústirnar niður á Heppu og síðustu daga hafa þeir dundað sér við það ásamt Sigga Palla myndmenntakennara. Málningaþjónustan sá um að grunna veggina á meðan nemendur höfðu samkeppni í hverjum árgangi um mynd sem ætti að fara á veggina. Hver árgangur fékk síðan að mála einn vegg. Í sólinni síðustu daga dunduðu nemendur sé svo við að mála og tengdist myndefnið hjá öllum hafinu.
Það var Menningarmiðstöð Hornafjarðar sem fékk Grunnskólanum þetta verkefni og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Það er mikilsvert fyrir nemendur að fá að koma að því að skapa ásýnd bæjarins á þennan máta.



