Fréttir Grunnskóli
Nes umhverfisdagur
Nes umhverfisdagur
Brugðið á leik í sandinum
Mynd 9 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Umhverfis og útidótadagur í Nesjum

26.05.2008

Síðastliðinn föstudag var mikið um að vera í Nesjaskóla. Nemendur skólans fóru á leiksýningu í Mánagarði og sáu Smagarðsdýpið mikla. Þennan dag var einnig hinn árlegi umhverfisdagur en þá er tekið til, stéttar sópaðar, gróðursett tré og kartöflur settar niður auk þess sem sú hefð hefur skapast að 3. bekkur tekur að sér að mála girðinguna umhverfis Sunnuhvol.

Dagurinn er nýttur í náttúrufræðikennslu þar sem fjallað er um ræktun, trjátegundir og fleira. Að þessu loknu sjá starfsmenn skólans um að grilla pylsur handa mannskapnum. Að þessu sinni var einnig útidótadagur en þá koma nemendur með útidót með sér í skólann. Það er alltaf mikið líf og fjör á umhverfisdaginn og ekki verra þegar honum líkur á því að leika með útidótið en það þykir alltaf spennandi.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica