Fréttir Grunnskóli
P1010297
P1010297
Öræfaferð 3.bekkinga
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

3. bekkur í Öræfaferð

23.05.2008

Að nesti loknu keyrðum við í Hofgarð og þar skein sólin á okkur og glöddumst við mikið yfir henni. Næst á dagskrá hjá okkur var að skoða Hofskirkju og okkur fannst hún líka vera mjög falleg og lítil kirkja en samt allt öðruvísi en Brunnhólskirkja. Skaftafell var næsti áfangastaður þar borðuðum við hádegisnestið okkar. Síðan gengum við upp að Svartafossi í blíðskaparveðri og busluðum þar og nutum góða veðursins. Á leiðinni til baka kíktum við á gamlan bæ sem heitir Sel og sáum þar hvernig fólkið bjó í gamla daga. Á hlaðinu þar voru hænur og flottir hanar sem glöddu augu okkar.
Við keyrðum næst að vatnadrekanum, príluðum á honum og borðuðum kaffinestið okkar þar. Svo keyrðum við að minnisvarðanum um Skaftárhlaupið 1996, notuðum hann sem rennibraut og spáðum í þá ógnarkrafta sem höfðu verið í vatninu þegar þetta hlaup varð. Eftir langan útivistardag var gott að komast í heitu pottana í Flosalaug í Svínafelli, hlæja svolítið og skvetta á hvert annað. Eftir sundferð fórum við í Hofgarð þar sem við borðuðum, höfðum kvöldvöku, fengum skúffuköku og mjólk og fórum síðan að sofa um 23:00, öll saman í salnum í Hofgarði.
Við vöknuðum eldsnemma á þriðjudagsmorgninum og byrjuðum að pakka dótinu okkar og fá okkur morgunmat. Klukkan 9:00 komum við í Hofsnes og þar biðu Einar og Aron eftir okkur með dráttarvél og kerru og við fengum far á kerrunni að læknum þar sem við sigldum á kajökum sem var ótrúlega skemmtilegt. Börnin skiptu sér í 3ja manna hópa, einn sigldi og hinir tveir skokkuðu með á lækjarbakkanum til að hjálpa til ef kajakinn stakkst í bakkann og festist. Lækurinn er grunnur og stutt á milli bakkanna þannig að þarna var engin hætta á ferðum - bara gaman  þegar síðasti hópurinn sigldi byrjaði að rigna en það var allt í lagi, við áttum bara eftir að klára að ganga frá í Hofgarði og koma okkur heim.
Það voru þreyttir og ánægðir ferðalangar sem komu heim eftir góða og vel heppnaða ferð.
Takk fyrir okkur.
Brynja og Sigríður Arna, Styrgerður og Berglind

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica