Fréttir Grunnskóli
Herdasmot_17._mai_08_005_a_vef
Herdasmot_17._mai_08_005_a_vef
Þorgeir Dan á verðlaunapalli á Héraðsmóti USÚ 17. maí síðastliðnn þar sem flest þessara krakka kepptu. Með honum eru Júlían Bent, og Einar Ásgeir.
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

5 nemendur í úrslit í þríþraut FRÍ

22.05.2008

Frjálsíþróttasamband Íslands stendur fyrir þríþraut sem nemendum í 6. og 7. bekk gefst kostur á að taka þátt í. Nemendur keppa þá í þremur íþróttagreinum, 400 m hlaupi, hástökki og kúluvarpi og ræður samanlagður árangur úrslitum. 47 grunnskólar tóku þátt víðsvegar af landinu og 64 nemendur komust í úrslit.
Sævar írþóttakennari stóð fyrir þríþrautakeppni hjá nemendum okkar í 6. og 7. bekk í vetur og komust 5 krakkar áfram frá okkur sem er frábær árangur. Þetta eru þau María Birkisdóttir, María Selma Haseta, Guðlaug Jóna Karldóttir, Atli Dagur Eyjólfsson, Þorgeir Dan Þórarinsson. Úrslitamótið í þríþrautinni fer fram í nýju frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum 31. maí.
Til hamingju krakkar með árangurinn.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica