Fréttir Grunnskóli
Ingólfshöfðaferð 2008
Ingólfshöfðaferð 2008
Ingólfshöfðaferð 2008
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

Ingólfshöfðaferð 5. bekkjar

16.05.2008

Þann 15. maí fór 5. bekkur í Ingólfahöfða. Við keyrðum frá Höfn í Öræfin og fórum út í Hofsnesi og fórum í vagn þaðan upp í Ingólfshöfða. Fyrst fórum við upp sandinn upp á Ingólfshöfða sem var soldið erfitt. Svo fórum við með Einari Sigurðssyni að skoða lunda. Við skoðuðum líka á svartbakshreiður. Svo gengum við smá spöl og þá komum við að RISA stórri sandbrekku og þar fengum við að leika okkur sem var mjög gaman og máttum borða nestið okkar. Næst kom Sigurður að ná í okkur á vagninum.

Svo þegar við komum aftur var tekin mynd af okkur öllum í vagninum. Síðan keyrðum við í rútunni í Sandfell og þar grilluðum við pulsur. Á meðan pulsurnar voru að grillast fóru sumir upp á fjall, aðrir voru að vaða í læknum, nokkrir voru að skoða hellinn og restin var eftir "lonely" að bíða eftir að pulsurnar grilluðust. Þegar einn krakkinn kom niður af fjallinu áttaði hún sig á því að hún hafði tínt gemsanum sínum. Allir leituðu í fjallinu, en þau fundu hann ekki. Síðan á leiðinni heim þá leitaði sami krakkinn og týndi gemsanum að myndavélinni sinni, hún kíkti ofan í bakpokan en hún hafði þá líka týnt myndavélinni. Svo fóru allir saddir og ánægðir heim nema þessi eina stelpa af því að hún týndi myndavélinni og símanum sínum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica