Sigurvegari í 4. bekk
Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir vann til verðlauna í teiknimyndasamkeppni Alþjóðalega skólamjólkurdagsins sem Mjólkursamsalan stóð fyrir meðal nemenda í 4. bekk í grunnskólum landsins. Mikill fjöldi teikninga barst í keppnina en tíu nemendur fengu viðurkenningu fyrir teikningar sínar. Með keppninni vill Mjólkursamsalan vekja athygli á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra var formaður dómnefndar en aðrir í dómnefnd voru Guðný Steinsdóttir, Guðríður Halldórsdóttir, Einar Matthíasson og Björn S. Gunnarsson frá MS. Verðlaun er veitt fyrir þær tíu myndir sem þóttu skara fram úr. Hver verðlaunahafanna fékk 25 þúsund krónur, sem renna í bekkjarsjóð vinningshafana. Teikningarnar verða notaðar á veggspjöld og annað kynningarefni vegna Skólamjólkurdagsins 2008 og eru aðgengilegar á vef Skólamjólkur.
Mjólkursamsalan vill með keppninni vekja athygli barna, foreldra og starfsfólks skólanna á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barnanna. Mjólkurdrykkja fer vaxandi í skólum og má það meðal annars rekja til mjólkurkælivéla sem eru í um helmingi íslenskra grunnskóla og njóta mikilla vinsælda meðal barna.
Grunnskóli Hornafjarðar óskar Eyjalín til hamingju með vinninginn og 4. S. Áfram 4. bekkur ;)



