Fréttir Grunnskóli

Vorhátíð 2008

Vorhátíð 8. - 10. bekkjar - 16.05.2008 Fréttir Grunnskóli

Í gær þann 15. maí var haldin vorhátíð í Mánagarði. Hún fór vel fram og var byrjað á því að borða yndislega grillaða hamborgara og kjöt. Svo voru skemmtiatriði eftir 9. bekk og voru þau mjög góð. Krýnd voru konungur og drottning Heppuskóla og það voru þau Iðunn Tara og Freyr. Lesa meira
 
Ingólfshöfðaferð 2008

Ingólfshöfðaferð 5. bekkjar - 16.05.2008 Fréttir Grunnskóli

Þann 15. maí fór 5. bekkur í Ingólfahöfða. Við keyrðum frá Höfn í Öræfin og fórum út í Hofsnesi og fórum í vagn þaðan upp í Ingólfshöfða. Fyrst fórum við upp sandinn upp á Ingólfshöfða sem var soldið erfitt. Svo fórum við með Einari Sigurðssyni að skoða lunda. Við skoðuðum líka á svartbakshreiður. Svo gengum við smá spöl og þá komum við að RISA stórri sandbrekku og þar fengum við að leika okkur sem var mjög gaman og máttum borða nestið okkar. Næst kom Sigurður að ná í okkur á vagninum. Lesa meira
 
eyjalin_med_vidurkenningarskjalid

Sigurvegari í 4. bekk - 16.05.2008 Fréttir Grunnskóli

Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir vann til verðlauna í teiknimyndasamkeppni Alþjóðalega skólamjólkurdagsins sem Mjólkursamsalan stóð fyrir meðal nemenda í 4. bekk í grunnskólum landsins. Mikill fjöldi teikninga barst í keppnina en tíu nemendur fengu viðurkenningu fyrir teikningar sínar. Með keppninni vill Mjólkursamsalan vekja athygli á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barna. |nl| Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica