Fréttir Grunnskóli
Namsferd_i_Sudursveit_08_031_a_vef
Namsferd_i_Sudursveit_08_031_a_vef
Í ratleiknum við Hala
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Námferð í Suðursveit hjá 4.-5.bekk

14.05.2008

Mánudaginn 5. maí fórum við í 4 og 5 bekk í Suðursveit. Strax og við komum þangað fórum við að ganga út á Breiðamerkursandi, svo hvíldum við okkur á Jökulsalóninu og þá var keyrt heim að Hrollaugsstöðum. Þegar við komum að Hrollaugsstöðum þá fóru allir að gera tilbúið fyrir kvöldið. Það var blásið í loft dýnurnar og sumir fóru að æfa skemmtiatriði fyrir kvöldvökna. Sumir fóru út að leika sér og síðan fóru svo flestir í fótbolta. Að því loknu fórum við inn að borða. Það var lasagne og kartöflumús í matinn og djús að drekka. Svo eftir matinn fóru allir að leika sér eða æfa.
Á kvöldvökunni sjálfri var borðað nammi, snakkið og drukkið gosið sem var komið með fyrir kvöldið, en samtals voru 11 atriði sem voru öll mjög skemmtileg. Og síðan var farið að sofa. Næsta dag vöknuðum við og borðuðum morgunmat og pökkuðum saman. Þá var lagt af stað í Þórbergssetur, og skiftumst við í 3 hópa, einn hópur fór að skoða safnið, annar hópur fór í ratleik og þriðji hópurinn fór að skoða fiskeldið og sauðburð. Á Þórbergssetri fengum við að kynnast því hvernig fólkið í gamadaga lifði, í ratleiknum áttum við að finna stafi og raða þeim öllum saman í lokin en krakkarnir sem fóru að skoða fiskeldið fengu að ná fiskum upp og láta þá í körin aftur. Svo gekk þetta koll af kolli. Síðn borðuðum við nestið í Þórbergssetri. Þaðan var farið aftur í Hrollaugsstaði. Þar léku krakkarnir sér úti á meðan kennararnir voru að sjóða pulsur, svo var borðað eins mikið og maður gat í sig látið. En í lokin var haldið heima á leið.

Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica