Fréttir Grunnskóli
Hreinsidagur_08_005_a_vef
Hreinsidagur_08_005_a_vef
Nemendur úr 5. H á umhverfidegi
Mynd 1 af 9
1 2 3 4 5 6 7 8 9

Umhverfisdagur á miðstiginu

09.05.2008

Á fimmtudag var umhverfisdagur á miðstiginu í grunnskólanum. Þá fóru 4. - 7. bekkingar vítt og breytt um bæinn og tíndu rusl og enduðu daginn á því að taka skólalóðina í gegn. Í hádeginu grilluðu Ingólfur og Stjáni á Kaffi Horninu pulsur handa nemendum og starfsfólki og borðuðu allir úti í blíðskapar veðri. Í hádeginu voru ný leikföng vígð s.s. úti mikado, moonhopper og fleira.
Það var óheimju rusl sem nemendur og starfsfólk tíndu og vonandi hafa allir bæjarbúar tekið eftir því hvað bærinn var snyrtilegur í gær. Við á miðstiginu leggjum mikið upp úr því að búa í snyrtilegum bæ og erum viss um að það vilja aðrir Hornfirðingar líka. Þess vegna biðjum við þá sem henda enn rusli á göturnar eða úti víðavangi að hugsa sig aðeins um og nota ruslafötur.
Hornafjörður er fallegur en umgengni okkar allra hefur mikið um það segja hvernig okkur líður í bænum og hvernig gestir upplifa hann.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica