Fréttir Grunnskóli
Isjakar_i_Ameriku
Isjakar_i_Ameriku
Ísjakarnir í Ameríku
Mynd 1 af 2
1 2

Fréttir frá Ameríku

03.05.2008

Hæ hæ
1.maí

Við vorum valin til þess að taka þátt í myndatöku fyrir allar auglýsingar á mótinu og svo fóru við í viðtal fyrir háskólann í Minnesota svo var opnunar athöfnin og þar voru kynnt liðinn og öll liðin sögðu takk fyrir á sínu tungumáli, svo sögðu stjórnendurnir frá aðalatriðunum og viðburðunum mótsins. Opnunar athöfnin fór fram í karla körfuboltahöllinni en heimastöðvarnar okkar voru í kvenna körfuboltahöllinni. Eftir opnunathöfnina var vísinda og eðlisfræði sýning sem var mjög fræðandi og skemmtileg.

2.maí
Í dag var aðalkeppnin þá kepptum við í brautinni, sýndum rannsóknarverkefnið , sögðum frá róbotinum og hvernig undirbúnings vinnan fór fram í okkar hóp. Við kynntumst helling af skemmtilegu fólki og fengum að vita meira um hópavinnu verkefnið sem er á morgun en með okkur í hóp eru lið frá Massachusetts, Wisconsin og Montana. Við erum búin að dreifa helling af bæklingum um Ísland og fólk er búið að vera mjög áhugasamt um Ísland og að læra að segja lítil orð á Íslensku. Einnig gekk okkur mjög vel í brautinni og erum að skora í kringum 300 stig sem við erum mjög ánægð með. Svo var kvöldvaka og þar sungum við lag á Íslensku og slógum auðvitað í gegn þar ;)

Á morgun er áfram haldandi keppni en núna erum við að fara að hvíla okkur og fara að sofa því við þurfum að vakna mjög snemma.

kveðja Ísjakarnir

3.  maí

Nýjustu fréttir af Ísjökunum eru þær að þeir komust í 32 liða úrslit af 64 liðum.

Frekari fréttir af Ísjökunum má lesa inn á www.horn.is og þar eru líka fleiri myndir inn á www.horn.is/lego.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica