Ísjakarnir lagðir af stað til Minneapolis
Í morgun fóru Ísjakarnir okkar með Arnarflugi til Reykjavíkur þaðan sem ferðinni er heitið til Minneapolis í Bandaríkjunum síðdegis í dag. Í Minneapolis keppa Ísjakarnir á Opna Ameríska Legomótinu fyrir hönd Íslands. Eins og Hornfirðingar muna þá sigruðu Ísjakarnir First Lego League keppnina á Íslandi sem haldin var 10. nóvember s.l. í Reykjavík og unnu sér þar með inn rétt til að keppa fyrir Íslands hönd á erlendri grundu. Í ár er ekkert Evrópumót í Legókeppninni og því þurftu íslensku keppendurnir að leita út fyrir álfuna og fyrir valinu varð Opna Ameríska 1. - 3. maí http://www.hightechkids.org
Fjöldi fyrirtækja og einstaklinga hefur styrkt Ísjakanna til ferðarinnar og eru aðstandendur hópsins afskaplega þakklátir fyrir þennan góða stuðning. Það er mikil vinna sem liggur að baki svona ferð en auk Ísjakanna sjálfra hefur Eiríkur Hansson kennari borið veg og vanda af öllum undirbúningi fyrir keppnina. Ísjakarnir eru skipaðir 9 nemendum í 7. bekk þeim Dóru Björnsdóttur, Guðlaugu Jónu Karlsdóttur, Guðmundi Kristjáni Sigurðssyni, Magnúsi Á. Magnússyni, Maríusi Sævarssyni, Perlu Sólveigu Reynisdóttur, Vigdísi Maríu Borgarsdóttur, Önnu Regínu Heiðarsdóttur og Þorgilsi Snorrasyni. Ísjökunum og Eiríki til liðsinnis við skipulagningu ferðarinnar hafa verið þau Sævar Þór Gylfason, Ester Þorvaldsdóttir og Krístín Ármannsdóttir sem eru fararstjórar í ferðinni. Auk þess hafa foreldrar og fleiri stutt dyggilega við bakið á hópnum og sem dæmi má nefna að auk fararstjóra og keppenda fara sex aðrir aðstandendur með hópnum út til Minneapolis.
Eins og sjá má á myndunum var það glaður hópur keppenda, fararstjóra og foreldra sem lagði land undir fót í morgun. Á Loftleiðum á hópurinn von á að hitta blaðamenn en þaðan liggur leiðin til Keflavíkur og í kvöld verður hópurinn kominn til Minneapolis. Strax á morgun hefst dagskráin sem stendur fram á laugardagskvöld. Hópurinn hefur síðan tvo daga til að jafna sig og skoða sig um vestra áður en hann leggur af stað heim á þriðjudag. Til Hornafjarðar munu þau koma síðdegis á miðvikudag.
Við munum reyna að birta reglulega fréttir af ferðalöngunum á heimasíðunni og nemendur og starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar óskar Ísjökunum góðrar ferðar og góðs gengis í Minneapolis.



