Fréttir Grunnskóli
Arshatid_2008_032
Arshatid_2008_032
Áhorfendur, vel var mætt á sýningarnar
Mynd 5 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Fyrsta árshátíðin undir merkjum Grunnskóla Hornafjarðar

23.04.2008

Hátíðin hófst með ávarpi skólastjóra en síðan hóf 1.M dagskrána með söng um lóuna og síðan sungu þau lag á ensku sem þau lærðu í enskutímum nú í vetur. 3 B sagði og lék söguna um tröllið í Ketillaugarfjalli sem át glaða og káta sveitunga sína og 3.S fræddi okkur um sólina og pláneturnar. 5 bekkur hélt tískusýningu sem þótti frumleg og skemmtileg og ekki spillti fyrir að nokkrir úr árganginum spiluðu undir. 7 bekkur samdi sérstaklega fyrir þetta tækifæri rapplag ,texta og dans sem þau fluttu ásamt undirleikurum úr bekknum. 9.bekkur var einnig með frumsamið verk en það var leikrit saman sett úr mörgum þekktum ævintýrum. Allir flytjendurnir sungu saman lag í lokin.
Kynnir hátíðarinnar var Róslín Valdemarsdóttir nemi í 9. bekk, 8. bekkur útbjó leikskrár og 10. bekkur sá um veitinga- og miðasölu en ágóðinn rennur í ferðasjóð

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica