Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar þriðjudaginn 22. apríl 2008 í Sindrabæ
Í sameinuðum grunnskóla breytast ýmsir hlutir og eitt af því er árshátíðin. Nú ætlum við að halda sameiginlega árshátíð með því að bjóða foreldrum og nemendum á sýningu til okkar. Það verða oddatölubekkirnir sem sjá um skemmtunina en hinir fá að njóta þess að horfa á þetta árið en sýna að sjálfsögðu á næsta ári. 10. bekkur sér um sölu á sýningunni og að innheimta aðgangseyri.
Aðgangseyrir verður 200 kr á árshátíðina, bæði fyrir börn og fullorðna en þó þarf hver fjölskylda ekki að greiða meira en 500 kr.
Það verða tvær sýningar, sú fyrri kl. 17:00 fyrir nemendur og fjölskyldur í 1. - 5. bekk. Síðari sýningin verður kl. 18:30 og er sú sýning fyrir nemendur og fjölskyldur í 6. - 10. bekkinga. Ef það hentar fólki alls ekki að fara á þá sýningu sem því er ætlað þá er allt í lagi að koma á hina sýninguna. Þetta er einungis gert til að hafa einhverja stjórn á aðsókninni.
Skólaakstur verður fyrir nemendur úr sveitum og verður haft samband við foreldra til að vita hvort börnin muni nýta sér skólaaksturinn.
Góða skemmtun
Nemendur og starfsfólk


