Árshátið Grunnskólans Hofgarði
Árshátíð Grunnskólans í Hofgarði verður haldin fimmtudagskvöldið 17. apríl kl. 20:00. Aðgangseyrir er kr. 1500,- (kaffiveitingar innifaldar) og skólablaðið er selt á kr. 500,- Nemendur skólans eru 10 og þau taka öll þátt í að flytja u.þ.b. klukkustundar langa dagskrá. Að þessu sinni er umgjörðin tengd heimabyggðarverkefni 8. bekkjar, sem þær tóku þátt í ásamt nokkrum öðrum skólum á landinu. Hugmyndavinna þeirra í verkefninu kemur til skila í þessari dagskrá.
Allir eru velkomnir
Nemendur og kennarar


