Fréttir Grunnskóli

Heimkoma úr Öræfum - 16.04.2008 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 6. og 7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar koma úr námsferðinni í Öræfum kl. 17 - 17:30.
 
Krakkar í Grunnskólanum Hofgarði

Árshátið Grunnskólans Hofgarði - 16.04.2008 Fréttir Grunnskóli

Árshátíð Grunnskólans í Hofgarði verður haldin fimmtudagskvöldið 17. apríl kl. 20:00. Aðgangseyrir er kr. 1500,- (kaffiveitingar innifaldar) og skólablaðið er selt á kr. 500, Nemendur skólans eru 10 og þau taka öll þátt í að flytja u.þ.b. klukkustundar langa dagskrá. Að þessu sinni er umgjörðin tengd heimabyggðarverkefni 8. bekkjar, sem þær tóku þátt í ásamt nokkrum öðrum skólum á landinu. Hugmyndavinna þeirra í verkefninu kemur til skila í þessari dagskrá. Allir eru velkomnir Nemendur og kennarar Lesa meira
 
SAFT-malting

Saft málþing - þú ert það sem þú gerir á netinu - 16.04.2008 Fréttir Grunnskóli

SAFT, vakningarverkefni um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum, stendur fyrir opnum málþingi í Nýheimum mánudaginn 21. apríl kl. 20:00. Markmið málþingsins er að draga annars vegar fram sýn nemenda og hins vegar foreldra og kennara á helstu kostum og göllum Netsins. Einnig verður áhersla lögð á að fá fram framtíðarsýn hópanna varðandi örugga og ánægjulega notkun og þróun Netsins. Þátttakendur vinna fyrst í tveimur málstofum en málþinginu lýkur með sameiginlegri málstofu nemenda, foreldra og kennara þar sem gerð verður grein fyrir niðurstöðum. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica