Uppeldi til ábyrgðar
Í dag kom Guðlaug Erla Gunnarsdóttir í heimsókn í skólann og var með fræðslu um uppeldi til ábyrgðar bæði fyrir starfsmenn og foreldra. Guðlaug Erla Gunnarsdóttir er aðstoðarskólastjóri í Álftanesskóla á Álftanesi en þar hefur verið unnið eftir kenningum Uppeldis til ábyrgðar í nokkur ár. Meistaraprófsverkefni Guðlaugar Erlu fjallar um Uppeldi til ábyrgðar og er hún einn af brautryðjendum stefnunnar hér á landi.
Tilraun var gerð til að halda fræðslufund fyrir foreldra í hádeginu en í ljós kom að þetta er ekki góður tími fyrir slíkt því einungis 10 foreldrar mættu á fundinn. Því verður að huga að öðrum fræðslufundi fyrir foreldra að kvöldi til síðar.
Starfsmenn gerðu hinsvegar góðan róm að heimsókn Guðlaugar Erlu en hún fundaði sérstaklega með stýrihópnum en einnig hélt hún fræðsluerindi fyrir alla starfsmenn.



