Gísli Arason kennir nemendum í 6. og 7. bekk
Í morgun var sú nýbreytni í kennslu 6. og 7. bekkjar að fenginn var "gestakennari". Fagið sem var til umfjöllunar var jarðfræði og kennarinn er Gísli Arason sem Hornfirðingum er að góðu kunnar.
Gísli er eins og sagt er kominn af léttasta skeiði , en hann er á 91. aldurári. Það kom samt ekki í veg fyrir að hann næði prýðisgóðu sambandi við börnin sem hlýdddu á hann útskýra hinar ýmsu steintegundir sem hann hefur fundið og safnað.
Það sem Gísli sýndi og kynnti börnunum voru m.a.steingerðar skeljar. Þær fundust á Hallbjarnarstaðakambi við Húsavík. Hinar tegundirnar eru fengnar á okkar svæði hér í A- Skaftafellssýslu. Þar má nefna baggalút, jaspís og bergkristalla. Einnig djúðbergið gabbró og líparít. Er þá fátt eitt talið.
Eitt kom mjög á óvart en það er "Eldfjallaeggið". Það myndast þannig að rauðleitt gosefni þeytist í loft upp og á því ferðalagi verður það þakið öðrum gosefnum í öðrum lit og þéttleika. Fyrirbærið er svo nokkurskonar egg sem taka má úr legi sínu ef svo má segja. Forvitnilegt. Einnig hafði Gísli komið með sykurberg en það lítur út eins og kandísinn góði. Aðspurður kvaðst Gísli hafa byrjað steinasöfnum á barnsaldri. Honum er minnisstætt að Þórbergur Þórðarson skáld kom heim til Gísla að Borg á Mýrum. Þá var hann (Gísli) nýbúinn að finna stein sem þótt afar merkilegur og sérstæður. Honum er minniststæðat hvað skáldið hafði mikinn áhuga á þessu.
Eins og fyrr segir er Gísli Arason kominn á efri ár. Samt sem áður eru starfskraftar hans og marga annara sem látið hafa af vegnjulegri launavinnu hafsjór af þekkingu og reynslu sem við verðum að koma áfram til komandi kynslóða.
Heimsók Gísla að þessu sinni var í tengslum við námsferð 6. og 7. bekkjar í Öræfin á morgun og þriðjudag. Þar munu nemendur m.a. ganga inn í Bæjarstaðaskóg og á þeirri leið munu þeir m.a. leita að steinum og ath. hvort þeir finna einhverja sem líkjast þeim sem Gísli sýndi þeim úr steinasafni sínu í dag.



