Fréttir Grunnskóli
Baldur Sigurdsson yfirdómari stóru upplestrarkeppninni
Baldur Sigurdsson yfirdómari stóru upplestrarkeppninni
Baldur Sigurdsson yfirdómari stóru upplestrarkeppninni
Mynd 2 af 3
1 2 3

Sigurvegarar í stóru upplestrarkeppninni

12.03.2008


Gabríel Örn Björgvinsson frá Grunnskólanum á Djúpavogi sigraði stóru upplestrarkeppnina sem haldin var í Hafnarkirkju í gær. Í verðlaunasætum lentu einnig Dóra Björg Björnsdóttir og Ingvi Þór Sigurðsson. Sparisjóður Hornfjarðar var sá aðili sem hefur styrkt keppnina undafarið og var svo einnig nú. En peningaverðlaun eru fyrir þrjú fyrstu sætin.

Alls tóku 11 nemendur þátt í keppninni en þetta er í áttunda skiptið sem nemendur frá Djúpavogi og Hornafirði taka þátt í keppninni. Upplesarar lásu úr bók Jóns Sveinssonar Nonna og ljóð eftir Stein Steinarr en það urðu allir að lesa, einnig las hver þátttakandi upp eitt sjálfvalið ljóð.

Eygló Illugadóttir hefur staðið í skipulagningu keppninnar ásamt umsjónakennurum nemenda. Hefð hefur skapast fyrir því að hefja undirbúning upplestarkeppninnar á degi íslenkrar tungu 16. nóvember.

Grunnskóli Hornafjarðar óskar nemendum til hamingju með góðan árangur í keppninni.


Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica