Snjór og fjör í Nesjaskóla
Í Nesjaskóla er mikið byggt og mokað þessa dagana enda hafa veðurguðirnir verið örlátir á byggingarefni við okkur undanfarið. Nemendur skólans eru mjög atorkusamir og hafa nýtt sér þá möguleika sem moksturstækin hafa skapað með því að ýta upp háum hraukum af snjó við skólann.



