Fréttir Grunnskóli
6._bekkur_001_a_vef
6._bekkur_001_a_vef
Einar Birkir Bjarnason
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Bókmenntavinna í 6. bekk

10.03.2008

Á hverju ári er fastur liður í námi barna í Grunnskóla Hornafjarðar að fjalla um tiltekna bók sem kennari velur. Nú var komið að sjötta bekk og í dag (mánudag) sýndu nemendur afrakstur vinnu sinnar. Að þessu sinni varð sagan Saltfiskar í strigaskóm fyrir valinu en hún er eftir Guðrúnu H.Eiríksdóttur. Það var gert með þeim hætti að bókinni var skipt bróðurlega á milli allra nemandanna sem komu komu upp í ræðupúlt og fluttu sína ritgerð.

Tveir nemenda 6. bekkjar þeir Darri Snær Nökkvason og Birkir Þór Hauksson voru svo vinsamlegir að greina frá hvernig þeirra upplifun var af að stíga í pontu og flytja sitt mál.

?Mér leið bara vel og fannst ekkert erfitt að koma upp.Ég fór bara eftir leiðbeiningum við smíðina og þá var þetta bara auðvelt? sagði Darri Snær.

?Þetta var bara þrælgaman , þetta var létt og fín bók.Þetta er góð bók og mér finnst ég hafa lært af þessu.Það var bara gaman að koma upp og flytja sína ritgerð og ég gæti vel hugsað mér að gera þetta aftur.Allt er betra þegar maður er jákvæður? sagði Birkir Þór að lokum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica