Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fer fram í Hafnarkirkju þriðjudaginn 11. mars kl. 16:00. Þetta er í áttunda skiptið sem nemendur á Djúpavogi og Hornafirði taka þátt í keppninni. Fyrir 11 árum var haldin upplestrarkeppni í Hafnarfirði og er það upphafið að þessari keppni sem nú er haldin á landsvísu. Skemmtileg hefð hefur skapast í kringum keppnina hér á suðausturlandi og er öruggt að hún er komin til að vera. Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember hefst undirbúningur nemenda. Eftir áramót er haldin bekkjarkeppni og síðan fer fram skólakeppni en þá kemur í ljós hvaða keppendur fara og taka þátt í lokahátíðinni.
Stóra upplestrarkeppnin er skemmtileg tilbreyting í skólastarfinu þar sem nemendur kynnast bókmenntum og ljóðum á annan hátt en dags daglega. Þjálfun í upplestri og framsögn skiptir miklu máli því fátt er skemmtilegra en að hlusta á vel fluttan texta.
Þátttakendur í ár eru:
1. Dóra Björg Björnsdóttir Grunnskóla Hornafjarðar
2. Ingvi Þór Sigurðsson Grunnskóla Hornafjarðar
3. Margrét Vilborg Steinsdóttir Grunnskóla Djúpavogs
4. Ásdís Pálsdóttir Grunnskóla Hornafjarðar
5. Þorgeir Dan Þórarinsson Grunnskóla Hornafjarðar
6. Siggerður Aðalsteinsdóttir Grunnskóla Hornafjarðar
7. Sædís Harpa Stefánsdóttir Grunnskóla Hornafjarðar
8. Gabríel Örn Björgvinsson Grunnskóla Djúpavogs
9. Vigdís María Borgarsdóttir Grunnskóla Hornafjarðar
10. Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir Grunnskóla Hornafjarðar
11. Þorkell Óskar Vignisson Grunnskóla Hornafjarðar
Baldur Sigurðsson er formaður dómnefndar en hann kemur á vegum Radda, samtaka um vandaðan upplestur og framsögn.
Kynnir keppninnar í ár varð í 1. sæti í fyrra en það er Svanhvít Helga Jóhannsdóttir.
Allir eru hjartanlega velkomnir.



