Fréttir Grunnskóli

Maria_Hjordis_a_vef

Fleiri Myndir af 6. bekkingum - 10.03.2008 Fréttir Grunnskóli

Hér koma fleiri myndir af 6. bekkingum að flytja verkefnin sín
 
6._bekkur_001_a_vef

Bókmenntavinna í 6. bekk - 10.03.2008 Fréttir Grunnskóli

Á hverju ári er fastur liður í námi barna í Grunnskóla Hornafjarðar að fjalla um tiltekna bók sem kennari velur. Nú var komið að sjötta bekk og í dag (mánudag) sýndu nemendur afrakstur vinnu sinnar. Að þessu sinni varð sagan Saltfiskar í strigaskóm fyrir valinu en hún er eftir Guðrúnu H.Eiríksdóttur. Það var gert með þeim hætti að bókinni var skipt bróðurlega á milli allra nemandanna sem komu komu upp í ræðupúlt og fluttu sína ritgerð. Lesa meira
 
Skolakeppnin_013_a_vef

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar - 10.03.2008 Fréttir Grunnskóli

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fer fram í Hafnarkirkju þriðjudaginn 11. mars kl. 16:00. Þetta er í áttunda skiptið sem nemendur á Djúpavogi og Hornafirði taka þátt í keppninni. Fyrir 11 árum var haldin upplestrarkeppni í Hafnarfirði og er það upphafið að þessari keppni sem nú er haldin á landsvísu. Skemmtileg hefð hefur skapast í kringum keppnina hér á suðausturlandi og er öruggt að hún er komin til að vera. Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember hefst undirbúningur nemenda. Eftir áramót er haldin bekkjarkeppni og síðan fer fram skólakeppni en þá kemur í ljós hvaða keppendur fara og taka þátt í lokahátíðinni. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica