Fréttir Grunnskóli
Torrablot_Heppuskola_005_+_a_vef
Torrablot_Heppuskola_005_+_a_vef
Þorrablót hjá unglingunum
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

Þorrablót í Heppuskóla

28.02.2008

Þann herrans dag 26. febrúar héldu efstu bekkir Grunnskóla Hornafjarðar sitt Þorrablót. Skemmtiatriðin voru alls ekki af verri endanum, enda vel æfð og uppsetningin skemmtileg. Kynnar kvöldsins voru Kristín Hallsdóttir og Sveinbjörg Zophoníasdóttir, og þau sem sáu um skreytingar og uppsetningu skemmtiatriðana voru 10. bekkirnir. Maturinn var auðvitað þorramatur og átu allflestir krakkarnir hangikjöt og harðfisk, og nokkrir treystu sér út í hákarl, sviðasultu og hrútspunga. Undir servíettunum voru svo nefndir happadrættismiðar, veglegir vinningar sem voru veittir í boði Nettó. Þegar flestir voru búnir að borða voru sungin þorralög og afmælissöngur fyrir Guðmund Inga og Sindra Örn. Eftir það var sögð smá saga um pörin, Kristín Hallsdóttir söng þar á eftir lagið Andvaka, annað af okkar framlögum í SamAust og tókst það með stakri prýði. Ekki eftir svo langan tíma var salurinn tæmdur og kallað var alla krakkana inn, nokkrar stelpur úr 10. bekk voru með dansatriði sem heppnaðist vel. Rétt eftir það hitaði svo hljómsveitin Antares, skipuð af Bjarna Friðrik, Andra Geir, Níelsi, Pálma Geir og Hirti Ara, sem var hitt af okkar framlagi í SamAust, þeir drengir stóðu sig ótrúlega vel. Kusk tók við eftir það, og byrjaði ballið þá af fullum krafti. All flestir skemmtu sér konunglega vel og dönsuðu af sér fæturna. Rétt fyrir kl. 24.00 var okkur svo smalað út í rútur og keyrt heim. Þakka ég samnemendum mínum fyrir góða skemmtun og gott ball.


Róslín Alma Valdemarsdóttir

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica