Skólahreysti 2008
Þann 21. febrúar sl. fóru um það bil 50 krakkar frá Grunnskólanum í Hornafirði úr 8. ? 10. bekk á hina frægu keppni, Skólahreysti. Keppnin var haldin á Egilstöðum annað árið í röð og verður keppnin bara stærri með árunum.
Þess má til gamans geta að áhorfendamet var slegið eða um 1000 áhorfendur mættu í íþróttahúsið á Egilstöðum.
Frá Grunnskóla Hornafjarðar fóru 4 ungmenni og enduðu þau í 2. sæti eftir mjög góða frammistöðu. Það voru þau Ólafur Albert, Anna Mekkín, Kristey Lilja og Fannar Blær.
Þátturinn verður sýndur á Skjá Einum kl. 20:00 í kvöld 26. febrúar og hvetjum við Hornfirðinga eindregið til að horfa.



