Fréttir Grunnskóli
Heimsokn_Valgerdar_ABC_004_a_vef
Heimsokn_Valgerdar_ABC_004_a_vef
Valgerður Sverrisdóttir sendiherra ABC hjálparstarfsins á Íslandi
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

ABC hjálparstarf

31.01.2008

Á morgun hefst söfnun á vegum ABC hjálparstarfs víðsvegar um land. Söfnunarféð í ár rennur til byggingar heimavistar í Pakistan og til byggingar heimavistar í Kenýa en leiguhúsnæðið þar er allt og lítið og óhentugt. Söfnunarféð rennur óskert til þessara málefna.
Síðustu ár hefur 4. bekkur grunnskólans safnað hér um slóðir og verður það einnig svo í ár. Formlega söfnun á landinu stendur allan febrúarmánuð en í næstu viku ætla 4. bekkingarnir okkar að fara af stað með söfnunarbaukana sína og verður þeim vonandi vel tekið.
Í morgun kom Valgerður Sverrisdóttir í heimsókn í 4. bekk en hún er sendiherra ABC hjálparstarfsins á Íslandi. Valgerður sagði frá þróunarhjálp og hvernig ástandið væri á sumum stöðum í heiminum. Það var fróðlegt að heyra í Valgerði og nú verða nemendur örugglega enn áhugasamari um söfnunina.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica