Fréttir Grunnskóli
Madur_arsins
Madur_arsins
Maður ársins 2007, Eiríkur og Ísjakarnir. Á myndina vantar tvo úr liðinu sem voru fjarverandi þennan dag.

Hornfirðingur ársins

31.01.2008



Eins og flestum er kunnugt um var Eiríkur Hansson kennari og Ísjakarnir, legó lið skólans, valin Hornfirðingur ársins 2007. Það er mikill heiður fyrir allan skólann að fá þessa útnefningu og erum við svo sannarlega stolt af henni.
Nú hefur verið ákveðið að Ísjakarnir fari til Minneapolis og keppi þar fyrir hönd Íslands á Opna Ameríska mótinu 1.- 3. maí næstkomandi. Ísjakarnir hafa þegar hafið undirbúning fyrir keppnina því snúa þarf öllu efninu á ensku auk þess sem þau ætla að bæta og breyta ýmsu í brautinni sjálfri. Framundan er því mikill undirbúningur og nám hjá liðinu. Að undanförnu höfum við leitað til fyrirtækja og stofnana um styrki til fararinnar og hafa ýmsir tekið beiðni okkar vel. En betur má ef duga skal og enn leitum við að styrkjum auk þess sem liðsmenn munu vinna að annarskonar fjáröflun fram að ferðinni. Ýmsir hafa spurst fyrir um hvernig þeir eigi að snúa sér vilji þeir stykja liðið til fararinnar og bendum við því hér með á reikningsnúmer sem liðið hefur yfir að ráða. Eins og gefur að skilja er dýrt að ferðast með lið til annarrar heimsálfu og öll framlög og styrkir því vel þegin.
Reikningsnúmer Ísjakanna 0172 - 26 - 234.    kt. 4902830219.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica