Bóndadagur í grunnskólanum
Að vanda hófst bóndadagur í Hafnarskóla á því að hraustir drengir skólans "buðu þorra í garð" að gömlum sið með því að hlaupa eða hoppa kringum skólann, sumir berfættir, á brókinni eða í annarri buxnaskálminni og sumir jafnvel berir að ofan. Það er gamall siður að á fyrsta degi þorra áttu bændur að bjóða þorra í garð eða fagna þorra með því að fara fyrstir á fætur. "Áttu þeir að fara ofan og út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina og láta hina svo lafa eða draga hana eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni hoppa á öðrum fæti í kringum allan bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa" (Saga daganna 1977 bls. 19) Margir drengjanna vildu bæta um betur og fara úr fleiru en forfeður þeirra gerðu og létu þar snjó og kulda engin áhrif á sig hafa. Á síðustu árum hefur þessi siður verið endurvakinn í skólanum og aðlagaður þeim aðstæðum sem þar eru. Mikill meirihluti drengja tók þátt í þessum viðburði að þessu sinni og skemmtu sér hið besta.
Síðar um daginn var skemmtun á sal á hjá öllum nemendum og starfsmönnum grunnskólans. Allstaðar voru hefðbundnir íslenskir þorrasöngvar sungnir og ekki mátti á milli greina hvort stelpurnar syngju hærra minni minni karla eða strákarnir minni kvenna. Í Nesja- og Hafnaskóla voru einnig skemmtatriði þar sem nemendur eða starfsmenn sáu um dagskrána. Að sjálfsögðu var svo boðið upp á þorramat í hádeginu til að gera sem mest úr bóndadegi, fyrsta degi þorra.



