Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur í heimsókn
Fimmtudaginn 10. janúar kemur Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingu í heimsókn til okkar og fjallar um mataræði, næringu, hreyfingu og fleira. Hún hittir alla nemendur í 6. - 10. bekk auk þess sem hún ræðir við starfsfólk skólans. Síðdegis verður hún með tvo opna fyrirlestra í Sindrabæ. Sá fyrri verður kl. 17:00 og er hann fyrst og fremst ætlaður íþrótta- og heilsuræktarfólki, þjálfurum, foreldrum írþóttafólks og öðru áhugafólki um íþróttir og næringu. Þar fjallar Fríða Rún m.a. um mikilvægi þess að huga vel að mataræði við þjálfun, hvernig samsetning fæðunnar getur haft áhrif á árangur, þyngd og fleiri áhugaverð atriði.
Kl. 20:00 verður síðan almennur fyrirlestur í Sindrabæ fyrir foreldra um næringu og mataræði barna og unglinga. Í þeim fyrirlestri fjallar Fríða Rún m.a. um það hvernig foreldrar geta stuðlað að hollu og góðu mataræði barna sinna og hvernig þeir geta á þann hátt hvatt til heilbrigðra lífshátta og stuðlað að betri líðan barna sinna.
Fríða Rún er mörgum kunn fyrir afrek sín í frjálsum íþróttum en hún starfar nú sem sem næringarráðgjafi hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi, MEDICA. Jafnframt sinnir hún ráðgjöf í Laugum World Class, ÍSÍ, er unglingalandsliðsþjálfari FRÍ og varaformaður frjálsíþróttadeildar ÍR.
Það er foreldrafélag, og foreldraráð grunnskólans í samráði við stjórnendur sem stendur fyrir heimsókn Fríðu Rúnar hingað.



