Mikið um að vera á elstastigi
Nemendur á elsta stiginu hafa haft ýmislegt fyrir stafni núna síðustu dagana fyrir jól. Á þriðjudaginn var sameiginleg skólaskemmtun þar sem hægt var að spila og spjalla og eiga notalega stund yfir kakóbolla og smákökum.
Íþróttadagur var í gær, miðvikudag og tóku nemendur þátt í ýmsum þrautum undir styrkri stjórn Steinars íþróttakennara. Mikil stemning var í íþróttahúsinu og tóku krakkarnir hraustlega á.
Stofujól voru síðan í dag, fimmtudag, kl. 11:00-12:00 og þá komu nemendur saman ásamt umsjónarkennara og áttu rólega samverustund.
Að loknum stofujólum eru nemendur komnir í jólafrí og hefst skóli aftur á nýju ári föstudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.
.jpg)


