Jólagjafalistinn
Leikhópurinn Lopi hefur á síðustu dögum verið að sýna leikverkið Jólagjafalistann í Mánagarði undir leikstjórn Magnúsar J. Magnússonar. Verkið fjallar um hóp krakka sem reyna að færa jólasveinunum jólagjafalistann því pósturinn er veikur. Á leiðinn hitta þau margar undarlegar verur.
Öllum nemendum grunnskólans var boðið á sýningu auk þess sem tvær almennar sýningar voru og ein upptökusýning. Almenn ánægja var með sýninguna jafnt hjá börnum sem fullorðnum og voru yngstu nemendur grunnskólans sérstaklega ánægðir enda efnið sérstaklega vel við hæfi þeirra.
19 leikarar taka þátt í verkinu að þessu sinni með leikhópnum Lopa en hann hefur nú starfað, með ýmsum breytingum, í 15 ár. Á þessu tímabili hefur hann sett upp 20 leiksýningar og má ætla að um 600 unglingar hafi komið að sýningunum á einn eða annan hátt. Þetta er mjög hátt hlutfall í þessu samfélagi.
Vinnan við þessar sýningar hefur verið með ýmsum hætti. Flestir hafa unglingarnir komið að þessu sem leikarar. En einnig sem ljósamenn, hljóðmenn, leikmyndasmiðir og málarar, sviðsstjórar, unnið að leikskrá og auglýsingum, miðasölu, verslunarrekstri, búningum, handritsgerð og mörgu fleiru sem að of langt væri að telja.
Að ofanrituðu má sjá að reynslan sem þau afla sér er af ýmsum toga. En kannski er sú reynsla dýrmætust er felst í samvinnunni, samvistunum og öllu hópstarfinu sem að svona leiksýningu fylgir. Þarna eru þau að starfa saman undir miklu álagi í ákveðinn tíma og samskiptin verða að slípast fyrir sýninguna. Auðvitað eru sveiflur í samstarfinu, milli unglinganna og svo á nú leikstjórinn það til að hvessa sig þegar nálægt sýningu er komið. En þetta jafnar sig allt þegar frumsýningu lýkur og allir ganga stoltir út í nóttina. Allar sýningar Lopa frá upphafi hafa verið íslensk leikverk.
Leikstjórann er óþarft að kynna. Hann hefur verið ötull talsmaður unglingaleiklistar og verið óþreytandi við þau störf. Eru honum færðar bestu þakkir fyrir.



