Jólasöngur í desember
Jólasöngur hefur ómað um ganga Heppuskóla nú í desember. En nemendur í 8. - 10. bekk hafa hist á sal og sungið jólalög undir stjórn Jóhanns Moravék. Krakkarnir hafa tekið vel undir í söngnum og hafa þetta verið virkilega skemmtilegar stundir, sem lífgað hafa upp á skóladaginn. Í dag, föstudag, tóku þeir bræður Andri Snær og Bragi Fannar nikkurnar með í skólann og spiluðu nokkur jólalög við góðar undirtektir samnemenda og kennara.
Nú styttist í jólaleyfi og líkur hefðbundinni kennslu miðvikudaginn 19.desember en fimmtudaginn 20.desember verða stofujól milli kl. 11 og 12.
.jpg)


