Fréttir Grunnskóli
fullveldisf
fullveldisf
Mynd 2 af 6
1 2 3 4 5 6

Fullveldisfagnaður

07.12.2007

Fimmtudaginn 29 nóvember sl. Var haldinn fullveldisfagnaður á vegum Þrykkjunnar og Grunnskólans. Elsta stigið (8.-10. bekkur) stóð fyrir þessari geysimögnuðu skemmtun. Skemmtinefndin var búin að æfa hin frábæru skemmtiatriði í mánuð og skreytinefndin var búin að vinna hörðum höndum við frábærar skreytingar. Einnig var búið að panta Dj Óla Geir, fyrrverandi herra Ísland, til að halda uppi stuðinu fram eftir kvöldi. Krakkarnir byrjuðu að týnast inn um kl. 19:30 þ.e.a.s þegar húsið opnaði. Þá var skreytinefndin tilbúin með rosa flottann fordrykk. Þegar flestir voru mættir á staðinn hófst gamanið með söngvakeppni og pizzu.

Bjarni Friðrik Garðarsson bar sigur úr bítum með lagið Hallelujah í útsetningu Jeff Buckley við undirleik Friðriks Jónssonar gítarleikara. Bjarni vann sér farmiða á SAMAUST sem er söngvakeppni Austurlands og einnig vann hann 15 þúsunda króna gjafabréf í Martölvuna í boði Skinney-Þinganes, síðast en ekki síst vann hann söngvasann sem er farandsbikar söngvakeppni Grunnskólans. Í öðru sæti var Kristín Hallsdóttir sem söng lagið Nakin, sem er lag hljómsveitarinnar Í svörtum fötum. Hrafn Eiríksson, Hjörtur Ari Hjartarson og Stefán Lárus Reynisson léku undir hjá Kristínu. Hún vann sér einnig farmiða á SAMAUST. Aðrir keppendur í söngvakeppninni voru Árdís Drífa, Lukka Óðins og Yrsa Líf.

Að söngvakeppninni lokinni var snædd mjög góð pizza með brauðstöngum og gosi frá Ósnum. Þegar búið var að snæða pizzuna tók skemmtinefndin völdin og flutti mjög góð skemmtiatriði. Að loknum skemmtiatriðum var svo tilkynnt um úrslit söngvakeppninnar og eins og fyrr sagði þá vann Bjarni Friðrik hana.

Þegar öllu þessu var lokið tók Dj Óli Geir völdin og spilaði til miðnættis, mjög gott ball að margra mati. Heyrst hefur á 10. bekkingum að þetta sé besta ballið síðan að Buff kom hér fyrir um tveim árum síðan.

Við viljum þakka fyrir gott ball og góða skemmtun og vonum við að næstu skemmtanir verði jafn góðar. Einnig viljum við þakka þeim sem veittu okkur styrki fyrir kostnaði og verðlaunum.

Iðunn Tara Ásgrímsdóttir og Karitas Björt Óskarsdóttir, nemar úr 10. bekk

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica