Loksins, loksins snjór
Unga fólkinu til mikillar gleði var alhvítt í morgun og góður snjór til að leika sér í. Kennarar notuðu því tækifærið og fóru út með nemendum að leika sér. Við höfum lært það að fyrsti tíminn er bestur þegar nota á snjóinn. Í hádeginu hafði hlýnað verulega og spáð er rigningu og hlýindum næstu dag. En það var gaman að fá þennan snjó og kannski endist hann okkur í nokkra daga.
Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru úti í snjónum í morgun.



