Bæjarstjórn býður legóhópnum í pizzu á Hótelið
Í tilefni góðs gengis í First Lego League bauð bæjastjórn Ísjökunum í pizzuveislu á hótelinu. Við það tækifæri afhenti bæjarstjórinn okkar Hjalti Þór Vignisson, Eiríki Hanssyni Sögu Hafnar fyrir framlag hans til legóhópsins en hann hefur eins og flestir vita leitt starfið frá upphafi. Hjalti hvatti nemendur til að líta á þennan sigur sem einn áfanga af mörgum á lífsleiðinni og velja sér strax næsta markmiði til að stefna að. Eins og fram hefur komið hefur grunnskólinn tekið þátt í þessari keppni frá byrjun eða í þrjú skipti og alltaf gengið vel. Þegar nemendur fóru að tínast í burtu kom Óðinn Eymundsson einnig færandi hendi og gaf hverju barni gjafabréf fyrir 16" pizzu á hótelinu.
Sannarlega gleðistund á hótelinu og þökkum við bæjarstjórn og þeim Hóteleigendum hlýhug í garð hópsins og skólans.



