Dagur íslenskrar tungu
Á degi íslenskrar tungu hefst stóra upplestrarkeppnin formlega stóra upplestrarkeppnin hjá 7. bekk. Af því tilefni fóru nemendur í 7. bekk á leikskólana og lásu fyrir börnin þar. Einnig voru þau með einskonar maraþonlestur á Menningarmiðstöðinni þar sem þau skiptust á að lesa upp úr bókinni Eyja glerfisksins eftir Sigrúnu Eldjárn. Gestir og gangandi gátu notið þess að hlusta á þau en þess má geta að bæjarstjórinn okkar hann Hjalti hitaði stóinn fyrir börnin áður en þau byrjuðu.



