Nesjaskóli heimsækir menningarmiðstöðina
Síðasta mánudag var nemendum Nesjaskóla boðið í heimsókn á menningarmiðstöðina. Þegar þangað var komið bauð Björg Erlingsdóttir alla velkomna og sagði frá Norrænu bókasafnsvikunni, sýndi nemendum Helvítisgjána og bauð síðan upp á Línu-klatta og djús. Eftir að veitingunum höfðu verið gerð góð skil var farið í reiptog yfir Helvítisgjána og síðan las Bryndís kafla úr Línu Langsokk. Þegar lestrinum var að ljúka tóku krakkarnir eftir því að dularfullir menn læddust inn á safnið. Krakkarnir voru fljótir að láta vita af þessum mönnum en áður en illa fór birtist Lína Langsokkur öllum að óvörum og skömmu síðar lögreglan. Það kom í ljós að menn þessir voru þekktir ræningjar. Úr þessu varð hinn mesti hasar en að lokum náðist að handsama ræningjana með hjálp krakkanna og Línu.
Svo var haldið aftur inn í skóla, allir glaðir og ánægðir með ferðina og viljum við þakka starfsfólkinu á menningarmiðstöðinni kærlega fyrir okkur.



