Fréttir Grunnskóli
lego1
lego1
Legohópurinn ásamt liðsstjóra með bikarinn sem kemur þeim til Evrópu.
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Sigursælir Ísjakar

13.11.2007



Eiríkur Hansson kennari og liðsstjóri var ánægður með fólkið sitt, því að það er samheldni og samstarf sem gildir í þessari keppni og það var það sem þau sýndu. Alls tóku 20 lið þátt í keppninni og er þetta því frábær árangur hjá Ísjökunum en liðið skipa nemendur úr 7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar. Ísjakarnir eru Anna Regína Heiðarsdóttir, Dóra Björg Björnsdóttir, Guðlaug Jóna Karlsdóttir, Guðmundur Kristján Sigurðsson, Magnús Ágúst Magnússon. Maríus Sævarsson, Perla Sólveig Reynisdóttir, Siggerður Aðalsteinsdóttir, Vigdís María Borgarsdóttir og Þorgils Snorrason. Þess má geta að Eiríkur Hansson hefur einnig staðið fyrir Nýsköpunarkennslu í Grunnskólanum og varð Hafnarskóli á s.l. skólaári Nýsköpunar skóli ársins. Til hamingju krakkar og til hamingju Eiríkur.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica