Föstudagshátíð í Nesjaskóla
Nú er 2. H búin að halda sína föstudagshátíð og tókst hún í alla staði mjög vel.
Nemendur fluttu leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö. Sögumenn voru Arnar Ingi, Arndís Ósk og Sigurborg. Hafþór Logi, Hildur, Guðbjörg, Guðný, Halldóra Dröfn Guðjón, Ægir og Svandís léku dvergana og stjórnuðu söngnum, Björgvin Ingi var í hlutverki konungsins og Margrét og Salóme léku fyrri og seinni konur hans. Ásrún Fanný stóð sig vel í hlutverki prinsins, Ingólfur lék veiðimanninn og Thelma ýr sá um að túlka Mjallhvíti. Andri Þór lék spegilinn góða og stóð sig með mikilli prýði. Björgvin Ingi las sögu eftir sjálfan sig og í lokin fluttu stelpurnar í bekknum lagið Syngjandi hér syngjandi þar með miklum tilþrifum. Þetta var hin besta skemmtun og stóðu krakkarnir sig afar vel.
Skorað var á 1. M að halda næstu hátíð.



