Fréttir Grunnskóli
Lego_007
Lego_007
Mynd 7 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Ísjakarnir á leið í Lego keppnina

07.11.2007

Liðið okkar heitir Ísjakarnir og við heitum Anna Regína Heiðarsdóttir, Dóra Björg Björnsdóttir, Guðlaug Jóna Karlsdóttir, Guðmundur Kristján Sigurðsson, Magnús Ágúst Magnússon, Maríus Sævarsson, Perla Sólveig Reynisdóttir, Siggerður Aðaslteinsdóttir, Vigdís María Borgarsdóttir og Þorgils Snorrason
Liðsstjórinn okkar er Eiríkur Hansson. Við erum í 7. bekk og erum að fara að keppa laugardaginn 10. nóvember í First lego league keppninni í Reykjavík. Keppnin verður haldin í Öskju í Sturlugötu Náttúrufræði húsi Háskóla Íslands frá kl 8:30-17:00.

Keppnin felst í að forrita og hanna robot til að leysa ýmsar þrautir. Síðan þurftum við að rannsaka orkunotkun Íslendinga. Þá áttum við eftir að gera skemmtiatriði og viljum við þakka Jóhanni Morávek fyrir að útsetja fyrir okkur lag. Þetta þurftum við að skrá allt í dagbók og svo þurfum við að skila henni. Við erum búin að vera dugleg að mæta og æfa þrautirnar, skemmtiatriðið og fyrirlesturinn.

Búið er að skrá keppnisdagskrána nákvæmlega niður og verðum við að vera klár á því hvenær við keppum, t.d fáum við aðeins um það bil eina mínútu til að stilla upp hljóðfærunum í kemmtiatriðinu og allt í allt fáum við bara fimm mínútur til að sýna það. Við viljum einnig þakka Skinney- Þinganes sem gaf hverju barni 1000 kr fyrir mat og skemmtun, Vífilfell gaf okkur svala og Nettó gaf okkur álegg á brauð og fleira.

Orkuveita Reykjavíkur og Hellisheiðarvirkjun buðu okkur að koma í heimsókn vegna þess að viðfangsefni firstlego keppninnar er orka og stefnum við að þeirri heimsókn á föstudaginn. Síðan ætlum við að kíkja á Hornfirðingana sem keppa í útSvar á Rúv.

Hvetjum við ykkur öll til þess að fylgjast með okkur inná www.firstlego.is eða þeir sem verða á Reykjavíkur svæðinu bara koma uppí Öskju og kíkja á okkur.

Höfundar; Dóra Björg Björnsdóttir, Siggerður Aðalsteinsdóttir og
Vigdís María Borgarsdóttir



Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica