Fréttir Grunnskóli
sundst9
sundst9
Mynd 10 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Frá foreldrafélagi 8.bekkjar

23.10.2007

Þriðjudaginn 16. október héldu tenglar foreldrafélags 8. bekkjar foreldrafund til að kynna fyrirhugað vetrarstarf. Í haust var gerð könnun meðal nemenda 8. bekkjar til að sjá hvað það væru sem þeir hefðu helst áhuga á að gera og í framhaldi af því var síðan vetrarstarfið skipulagt. Í október/nóvember ætla krakkarnir að gista í Araseli, grilla og halda kvöldvöku, í janúar/febrúar á að fara í skautaferð með heitt kakó og sætabraut og svo þegar hlýna fer næsta vor, á að halda sundlaugarpartý og pizzuveislu. Ákváðu tenglarnir að halda fund með foreldrunum til að kynna það sem fyrirhugað er og fá foreldrana til samstarfs. Á fundinn voru boðaðir foreldrar allra barna í 8. bekk í Grunnskóla Hornafjarðar.

Því miður mættu einungis foreldrar 6 barna. Þeir foreldrar sem ekki sáu sér fært að mæta á fundinn hafa þó ekki tapað tækifærinu til að taka þátt í foreldrastarfinu og skemmta sér með barninu sínu og vinum og skólafélögum þess. Nú er tækifæri til að skoða það sem fyrirhugað er í félagslífinu, hafa síðan samband við tenglana og skrá sig á það sem fyrir valinu varð, því það er ljóst að þetta er ekki hægt nema með hjálp foreldra.
Hlökkum til að heyra frá ykkur sem allra fyrst.
Kveðja frá tenglum 8. bekkjar

Styrgerður styrgerdur@hornafjordur.is
Konný hp-synir@eldhorn.is
Sævar saevar.g@simnet.is
Hrafnhildur hokki@simnet.is

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica