Raunveruleikurinn í 10. bekk
Í ár ætla 10. bekkir Grunnskóla Hornafjarðar að taka þátt í Raunveruleiknum í fyrsta sinn. Leikurinn er gagnvirkur hermileikur spilaður á netinu, hannaður sem fjármála og neytendafræðsla fyrir efsta bekk grunnskólans. Leikurinn stendur yfir í 4 vikur og þurfa nemendur að leysa verkefni á vefnum á hverjum degi. Þess má geta að leikurinn fékk verðlaun norrænu ráðherranefndarinnar fyrir besta námsefnið í neytendamálum. Í upphafi leiks byrjar leikmaður sem 20 ára einstaklingur á leið út í lífið eftir framhaldsskóla. Leikmaðurinn fær ákveðna upphæð á bankareikning í upphafi leiks en líf hans er að öðru leyti óskrifað blað.
Hver leikmaður þarf að móta aðstæður sínar, t.d. í hvað á að eyða peningunum, hvað skal borða og hvort sækja eigi um vinnu eða skrá sig í háskóla. Allt þetta val er opið meðan á leiknum stendur. Raunveruleikurinn er keppni þar sem þátttakendur keppast fyrst og fremst við að komast af í hörðum heimi raunveruleikans, ná endum saman, taka réttar ákvarðanir, þroskast og komast til metorða.
Hægt er að nálgast meiri upplýsingar á slóðinni www.raunveruleikurinn.is



