Fréttir Grunnskóli
Tonlist_fyrir_alla_017_a_vef
Tonlist_fyrir_alla_017_a_vef
Frá skólatónleikum "Tónlist fyrir alla" haustið 2006

Tónlist fyrir alla- skólatónleikar á Höfn 24. október.

21.10.2007

Næsta miðvikudag á skólatíma verða tónleikar í Sindrabæ fyrir alla nemendur grunnskólans og elstu nemendur leikskólanna.

Björn Thoroddsen og Andrea Gylfadóttir hafa sett saman skemmtilega dagskrá sem ætluð er til flutnings í grunnskólum landsins og gert er ráð fyrir þátttöku barnanna að hluta til og þá einna helst í söng. Söngtextana er hægt að nálgst hér. Dagskráin, sem tekur um 40 mínútur í flutningi, kallast "Söngvar afa og ömmu". Byggist hún fyrst og fremst á lögum af tveimur geisladiskum sem þau Björn og Andrea hafa gefið út; Vorvindum (2006) og Vorvísum (2007). Þessir diskar hafa fengið afar góðar viðtökur og góða umsögn gagnrýnenda.

Nöfn beggja diskanna vitna í vorið og er það vel við hæfi, því í mörgum þessara laga, sem hafa fyrir löngu fest sig í sessi hér á landi, hvort sem þau eru íslensk eða ekki, er vor- og sumarrómantík allsráðandi. Lögin eru, eins og áður sagði, flest frá seinustu öld, og þá frekar frá fyrriparti aldarinnar, og má til dæmis nefna lög eins og Vorvindar glaðir, Draumur hjarðsveinsins, Hlíðin mín fríða, Blátt lítið blóm eitt er, Sprettur (eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson), Smaladrengurinn / 'Ut um græna grundu (e. Skúla Halldórsson), Mér um hug og hjarta nú, Geng ég fram á gnýpur, Heiðlóukvæði, Vér göngum svo léttir, o.s.frv.

Tríó Björns Thoroddsen hefur verið starfandi í um 20 ár og meðlimi tríósins þarf vart að kynna. Björn hefur verið fremstur meðal jafningja í íslenskum jazzi í meira en tvo áratugi og Andrea Gylfadóttir hefur verið ein af okkar ástsælustu söngkonum til margra ára. Hún hóf sinn feril með hljómsveitinni Grafík, en hefur starfað einna lengst með hljómsveitinni Todmobil. Einnig leika á þessum diskum þeir Jón Rafnsson, sem hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi síðastliðin ár, og leikur einnig, ásamt Birni, í tríóinu Guitar Islancio og Jóhann Hjörleifsson, sem hefur verið einn af okkar eftirsóttustu trommuleikurum til fjölda ára, og leikur með hinni vinsælu hljómsveit Sálinni hans Jóns míns og er einnig fastur trommari Stórsveitar Reykjavíkur.

Þess má geta að á þriðjudagskvöldið er stefnt að því að Tríó Björns Thoroddsen verði með tónleika fyrir almenning hér á Höfn.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica